
Bakarahornið mitt
Ég er að verða svo mikill bakari, ég sem hef aldrei bakað gott brauð, baka æðislegt brauð í dag og það súrdeigsbrauð. Hver hefði trúað því að ég myndi nenna einhverju svona veseni? Alla vega hefði ég sagt "Ekki ég" fyrir nokkrum árum en í kjölfar þess að ég uppgötva að ég sé með gluten óþol og ég sem elska brauð og það helst hvítt og ristað þá datt mér í hug að prófa þetta og ég held áfram að prófa og prófa og er komin á þann stað að ég er að fara að prófa að baka súrdeigs spelt pizzabotna á morgun. Það verður spennandi að sjá og smakka og svo vita hvernig ég verð í liðunum og bakflæðinu eftir það. Ég finn nánast ekki neitt fyrir þessu af venjulegu súrdeigs- speltbrauði en ég passa mig samt líka á að borða ekki of mikið af því. En í ljósi þess að konan er að verða bakari og nýbúin að breyta eldhúsinu þannig að borðplássið varð að engu þá vantaði pláss og nú er komið bakarahorn í eldhúsið mitt og hvað vantar þá? Já það vantar eitthvað töff plakat þarna fyrir ofan, færa myndina af Mirrun
17 December 2025

Staðgengillinn....
Já það er spurning, getum við kallað hana Kiwi staðgengilinn hans Erro? Já að ansi mörgu leiti og svo fyndið hvað maður sá ekki endilega þennan karakter meðan Erro var hjá okkur, enda var hann frekur á athygli og kettirnir alltaf aðeins til hliðar. En núna erum við farin að sjá svo skondna hlið á Kiwi (Nala er bara kósídýr sem vill sofa hjá peisnum og borða 3svar á dag ef hún fengi að ráða). Það gerðist um daginn að ég lá uppí rúmi að horfa á eitthvað í ipadinum og hurðin var alveg að stöfum en ekki lokuð og þá heyri ég klórað í hana og bling..... Kiwi kemur bara labbandi inn í herbergi eins og drottning, búin að opna hurðina sjálf. Á hverjum morgni þegar við Þráinn vöknum saman, þá heyrir hún greinilega í okkur og kemur beint á hurðina og bankar, já hún bankar og bíður svo smá stund. Venjulega fer Þráinn fram úr aðeins á undan, enda hann sem á að mæta snemma í vinnu, ég ligg nógu lengi til að vera viss um að hann græji kaffibolla handa mér. Og þegar ég kem framúr, stendur Kiwi fyrir u
5 December 2025

Sunnudagur – fyrsti dagur vikunnar, er það?
Ég las skemmtilega færslu í grúbbunni, skemmtileg íslensk orð í gær og var þetta pæling með dagana og af hverju sunnudagur er fyrsti dagur vikunna á Íslandi og minntist á þetta við Þráin í morgun (eða nótt þar sem við förum á fætur kl. 5) hann sagði að vikan byrjaði á mánudegi og ég bara, nei það er bara vinnuvikan, sunnudagur er fyrsti dagur vikunnar. Já ég setti punkt þarna því mér fannst þetta bara vera einfalt og punktur, en hann var ekki sammála og fór að tala um dagatalið í símanum og ég sagði það vera alþjóðlegt og ekki aðlagað að íslensku dagatali. En þá bað hann mig vinsamlegast að spyrja Gurrí vinkonu og hún svaraði mér ekki eins og ég hefði viljað ha ha ha týpisk ég, svo ég googlaði og fann grein á vísindavefnum sem talaði um hefð. Ég sendi Gurrí greinina því AI verður aldrei betri ef við færum henni ekki meiri upplýsingar, þegar við höfum þær. Svo sameiginlega niðurstaða okkar Gurríar er: 🌤️ Gamla íslenska hefðin – sunnudagur sem dagur númer eitt Þegar ég fór að kynna mér
28 November 2025

Frá mynd til plakats uppá vegg
Mig langar svo að sýna ykkur hvernig ljósmynd verður að plakati uppá vegg hjá þér til dæmis, með því að sýna ykkur ljósmyndirnar mínar sem eru fyrirmyndirnar að plakötunum sem ég er búin að vera að gera og er að selja. Þetta hefur verið algjör berg- og dalbane eins og Norðmenn segja að búa þetta til en mest bara ótrúleg gleði og þvílík nostralgía að vera að rifja upp þessar gömlu vörur sem voru til þegar ég var lítil. Byrjum á Sinalco og Spur cola stelpunum. Þau plaköt eru unnin upp úr sömu ljósmyndinni, með fyrirmælum frá mér til Gurríar (Chat GPT) um hvernig hún eigi að breyta, laga, bæta og vinna. Þetta gerist ekkert sjálfkrafa, því ég er með ákveðnar hugmyndir sem ég óska eftir. Hérna sjáið þið frummyndina. Og hérna er svo Spur cola myndin þar sem augljóslega má sjá hvaða mynd er fyrirmyndin fyrir utan að stúlkan var gerð eldri þar sem mér finnst ekki börn eiga að auglýsa vörur og því ekki heldur þá á plakötum frá mér. Sinalco myndin er komin talsvert lengra frá upphaflegu myndinni
27 November 2025

Þegar ljósmynd verður að plakati
Eins og þið líklega vitið öll, þá eru öll plakötin mín sem ég hef verið að búa til og er að selja á www.mirra.no gerð uppúr ljósmyndum frá mér. Hvort sem er landslagsmyndum eða portrait. Nýjasta verkefnið mitt er Ajax og Spákonan og eru þau plaköt unnin uppúr myndum af henni Maddý heitinni tengdamömmu. Og þegar ég var að leita að þessum myndum til að vinna með, þá fékk svo mikinn söknuð til hennar sem gat verið svo skemmtileg og alltaf til í að leika með mér þegar hún var hérna úti í heimsókn hjá okkur. Verst að hún kom aldrei síðustu árin sín, þó heilsan hefði alveg boðið uppá það, þar til alveg í restina. Þegar ég heimsótti hana á Íslandi þá saknaði ég hennar á sama tíma, því hún var ekki þessi skemmtilega kona sem hún var alltaf þegar hún var hérna úti hjá okkur. Hún vissi allt um okkur, um alla staði hérna í kring og þekkti alla sem við þekktum. Og ekki minnst var svo mikið til í að leika sér með okkur alltaf. En það er gott að geta rifjað upp þessar góðu stundir og nú er ég búin a
21 November 2025

Þegar kona.....
Já þegar kona sem er vön að vakna kl. 5 á morgnanna (já ég veit, það eru heldur ekki svo mörg ár síðan ég hefði sagt að kl. 5 sé ennþá nótt en ekki morgun) vaknar í dag, kl. 6.20 og upplifir að hún hafi sofið yfir sig og hreinlega fer næstum í panik. Það skal þó tekið fram að ég á ekki að mæta í vinnu fyrr en kl. 8. En svona er þetta hjá vanaföstu fólki. Nú nú ég var ekki seinni en svo að ég ákvað að blogga smá þar sem það er svo langt síðan síðast, en það er vegna þess að það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér að stofna nýja plakat verslun. Það er ekki víst að allir átti sig á vinnunni við þetta, því það er hreinlega ekki víst að allir átti sig á því að ég geri allt sjálf. Frá því að taka myndirnar, vinna þær í plakatið, sumt eingöngu mín vinna í tölvu og annað gert með aðstoð gervigreindar en öll plakötin mín eru gerð uppúr ljósmyndum frá mér. Svo þarf að gera heimasíðu og tengja hana við td. PayPal svo hægt sé að kaupa og greiða fyrir plakatið, svo þarf að finna fyrirtæki sem
17 November 2025
