Já það er spurning, getum við kallað hana Kiwi staðgengilinn hans Erro? Já að ansi mörgu leiti og svo fyndið hvað maður sá ekki endilega þennan karakter meðan Erro var hjá okkur, enda var hann frekur á athygli og kettirnir alltaf aðeins til hliðar. En núna erum við farin að sjá svo skondna hlið á Kiwi (Nala er bara kósídýr sem vill sofa hjá peisnum og borða 3svar á dag ef hún fengi að ráða).
Það gerðist um daginn að ég lá uppí rúmi að horfa á eitthvað í ipadinum og hurðin var alveg að stöfum en ekki lokuð og þá heyri ég klórað í hana og bling..... Kiwi kemur bara labbandi inn í herbergi eins og drottning, búin að opna hurðina sjálf. Á hverjum morgni þegar við Þráinn vöknum saman, þá heyrir hún greinilega í okkur og kemur beint á hurðina og bankar, já hún bankar og bíður svo smá stund. Venjulega fer Þráinn fram úr aðeins á undan, enda hann sem á að mæta snemma í vinnu, ég ligg nógu lengi til að vera viss um að hann græji kaffibolla handa mér. Og þegar ég kem framúr, stendur Kiwi fyrir utan dyrnar og bíður eftir mér, lítur upp á mig til að athuga hvert ég ætli, sem er alltaf sami staðurinn, ég fer að pissa. Þá kemur hún labbandi til mín eins og drottning (fyrirsætan köllum við hana því hún gengur eins og fyrirsæta með annan framfótinn fram fyrir hinn, kannski þess vegna sem það er kallað catwalk þegar fyrirtæta gengur eftir sýningarpalli.) og bíður eftir að ég klappi sér smá, svo þegar ég stend upp og sturta niður, þá stekkur hún til og bíður mín við dyrnar, horfir upp á mig til að sjá hvert fer ég núna. Ég fer fram og hún labbar aðeins á undan, en stoppar svo til að sjá hvort ég sé ekki örugglega að koma niður, hún labbar svo að stiganum og bíður aftur, það er ekki fyrr en hún sér að ég tek fyrstu tröppuna að hún hleypur niður stigann og bíður svo fyrir neðan. Fylgjist með mér.... hvað haldiði að hún vilji að ég geri svo?
Jú jú ég á að gefa þeim systrum að borða.
Ég hef prófað að plata hana en af því hún er svo vör um sig, og bíður alltaf eftir að sjá hvaða hreyfingu eða hvaða skref ég tek næst, þá er það alls ekki hægt. Hún bankar líka á slottið, því við erum með það lokað núna til að halda smá hita inni þegar við erum þar og ef við önsum ekki þegar hún krafsar í hurðina, þá vælir hún, gengur um meðfram slottinu og vælir, ég vil koma inn til ykkar! Svo opnum við og þá verður mín glöð. Stekkur beint uppí fangið á Þráni, því jú hún er drottningin sem sækir í karlmanninn á heimilinu, hún kemur aldrei til mín ef Þráinn er heima nema til að biðja um mat. Ég er svo greinilega matmóðirin á þessu heimili. Já já eðliega, mér finnst gaman að elda og er núna farin að baka súrdeigsbrauð með spelthveiti og er alveg að mastera það, brauðið í gær var fullkomið.
En aftur að dýrum, því það er svo skondið að sjá svona mikinn karakter í dýrum og ég hef sérstaklega tekið eftir því núna undanfarið hjá hvolpunum hjá Mirru og Helge, þvílíkt ólíkir karakterar og svo fyndið að Litla verður svo afbrýðisöm ef Nona kemur til mín, og stekkur upp í fangið á mér og ýtir hinni frá eins og hún sé að segja, "Ég á hana ömmu". Og Litla er svo mikil fjörkálfur, og verður svo glöð þegar koma gestir eða hún kemur í heimsókn á meðan hin er rólegri og getur alveg bara lagt sig á meðan gestir eru. Hummm minnir á mig og Konný, ha ha ha. Kannski systur séu bara alltaf svona ólíkar, það gerir þetta að minnsta kosti miklu skemmtilegra.
En já krakkar, nú er desember byrjarður með blasti, hérna í Noregi og á Nesan þar sem við búum hafði engin jólaljós þegar við fluttum árið 2017 og alls enginn bara hérna í dalnum, núna er allt uppljómað, við ýttum að sjálfsögðu við einhverjum en svo hefur þetta bara breyst hin síðari ár, seríur orðnar ódýrari og þægilegri, við elskum þessar í Europris sem hægt er að setja saman og bæta inní ef partur skemmist og svo heita þær Gudbrandsdalen og fleiri flottum norskum staðarnöfnum sem segir mér að þetta séu seríur gerðar fyrir norskt veðurfar. Við tökum okkar seríu aldrei niður, bara tökum úr sambandi í lok janúar og setjum í samband í lok nóvember, einfalt og þægilegt.
Ég er búin að vera upptekin að halda áfram að gera netbúðina mína betri og læra svolítið að búa til auglýsingar og reyna að hugsa öðruvísi sem Mirrafoto en ég hef gert, og vonandi tekst það, fæ allavega meiri athygli en salan fer hægt af stað, en jú jú það tekur allt sinn tíma og ef eitthvað er, þá hef ég hann og nýt þess að eyða honum í litla barnið mitt sem er plakatbúðin mín.
Endilega kíkið á það sem ég er með til sölu og bara kaupið ef ykkur líst á þetta, ég er að selja plakötin ódýrt svo það ætti ekki að vera fyrirstaða, þe. verðið.
Eigið frábæra aðventu í ys og þys borgarinnar og ljósanna eða bara í rólegheitunum úti í sveit eins og ég.
Ykkar Kristin á Nesan.





