Já þegar kona sem er vön að vakna kl. 5 á morgnanna (já ég veit, það eru heldur ekki svo mörg ár síðan ég hefði sagt að kl. 5 sé ennþá nótt en ekki morgun) vaknar í dag, kl. 6.20 og upplifir að hún hafi sofið yfir sig og hreinlega fer næstum í panik. Það skal þó tekið fram að ég á ekki að mæta í vinnu fyrr en kl. 8. En svona er þetta hjá vanaföstu fólki. Nú nú ég var ekki seinni en svo að ég ákvað að blogga smá þar sem það er svo langt síðan síðast, en það er vegna þess að það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér að stofna nýja plakat verslun.
Það er ekki víst að allir átti sig á vinnunni við þetta, því það er hreinlega ekki víst að allir átti sig á því að ég geri allt sjálf. Frá því að taka myndirnar, vinna þær í plakatið, sumt eingöngu mín vinna í tölvu og annað gert með aðstoð gervigreindar en öll plakötin mín eru gerð uppúr ljósmyndum frá mér. Svo þarf að gera heimasíðu og tengja hana við td. PayPal svo hægt sé að kaupa og greiða fyrir plakatið, svo þarf að finna fyrirtæki sem prentar plaköt í góðum gæðum og gera samning við. Þegar það er búið (þó er það aldrei búið, því lengi getur kona gert ný og ný plaköt) þá þarf að setja myndirnar upp á heimasíðuna, búa til svokallaðar mockup myndir til að geta sýnt hvernig plakötin líta út, á hinum ýmsu veggjum, gefa hverju einasta plakati vörunúmer, stofna það á paypal og síðan að setja hvert einasta plakat inná prentsíðuna og svo tengja þetta allt saman, saman. Ekki að ég sé að kvarta því mér finnst ekkert leiðinlegt að vinna og alls ekki þegar vinnan er í tölvu, en þetta er hörkuvinna og þegar allt var tilbúið og ég hefði átt að geta farið að slappa af, þá tekur við nonstop vinna við að gera auglýsingar, taka upp vídeó og setja á samfélagsmiðla. Og þar má aldrei stoppa því þá stoppar fólk að kíkja í búðina, svona er online sölulífið.
En ég var í fríi um helgina því við vorum að fagna 25 ára afmæli einkadótturinnar á laugardaginn og svo bara vorum við hjónin að dúlla okkur við alls konar heima. Og það sést á heimsóknum á síðuna mína að þær hafa alveg dottið niður en þá þýðir það bara að í þessari viku verður unnið við samfélagsmiðlaauglýsingar, sem ég vona að ég sé að verða betri í og persónulegri. Það er nefnilega svo skrítið að ég sem er mjög opin og ekkert hrædd að setja mig ljóta og skrítna á netið, hef átt erfitt með að tengja mig persónulega við Mirrafoto sem er samt bara ég og enginn annar og ætti því ekki að vera neitt vandamál, en ég er að vinna í því að finna og segja frá hvað ég sé að gera frábæra hluti með þessari plakatbúð og hvað plakötin mín séu flott og það allt saman. Já, þetta gat ég, ha ha ha!
www.mirra.no
Allir að kíkja þangað og panta sér plakat af sínum uppáhaldsstað og ég vona að ég eigi hann nú þegar í búðinni, en það er alltaf möguleiki að ef ég hef komið á þann stað að ég eigi mynd og geti þar af leiðandi útbúið plakat fyrir þig. Nú eða af uppáhaldsdrykknum þínum frá í gamla daga, sinalco, spur cola, braga kaffi eða río kaffið, nú eða bara flott plakat ótengt þínu uppáhaldseitthvað.
Allir að kíkja á www.mirra.no og sjá hvort þeir finni ekki eitthvað plakat við sitt hæfi eða til að gefa. Og ef einhverjar spurningar vakna þá er bara að senda mér skilaboð.
Ykkar Kristín Jóna á Nesan.




