
KJÚKPRIKUSÚPA
Gerði þessa líka frábæru súpu árið 2012, og af því að þetta var bullað uppúr mér þá ákvað ég að skrifa niður uppskriftina sem ég geri allt of sjaldan Nafngiftina á ung stúlka Bjartey, sem var stödd í matarboðinu og kunnum við henni þakkir fyrir. Allt sett í pott með gleði og ánægju og soðið þar til tilbúið.
13 June 2026

Matarmikil grænmetissúpa
Dásamleg matarmikil grænmetissúpa, tilvalin á mánudegi þegar allir eru búnir að fá nóg af steikum um helgina. 🌸
12 June 2026

LAUFABRAUÐ ALA MOGGINN
Uppskriftir að laufabrauði eru breytilegar eftir fjölskyldum. Sumir búa til hreinar hveitikökur, á meðan aðrir bæta heilhveiti eða rúgmjöli í uppskriftina. Enn aðrir setja kúmen út í deigið. 1 kg hveiti 30 g sykur 1 tsk. lyftiduft 1 tsk. salt 6 dl mjólk 1 msk. smjörlíki Muna að við þurfum bara 4 kubba Flott til að steikja 60 laufabrauð eða 3falda uppskrift og MUNA að ekki hnoða í vélinni. Blandið saman þurrefnunum. Hitið mjólkina upp að suðumarki og bræðið smjörlíkið í henni. Hellið saman við þurrefnin og hrærið vel saman. Hnoðið í samfellt deig, og búið til lengjur. Geymið undir rökum klút. Þetta þarf að ganga hratt fyrir sig, því best er að fletja deigið út á meðan það er ennþá volgt. Skerið eða klípið deig af rúllunni og fletjið þunnt. Stráið smáhveiti undir áður en flatt er, og berið hveiti á kökukeflið. Það er talin góð flatning ef hægt er að lesa fyrirsagnirnar á forsíðu Morgunblaðsins (sumir segja textann) í gegnum deigið. Leggið disk ofan á útflatt deigið og skerið út. Notið k
11 June 2026

Heitur brauðréttur með skinku og brokkolí
Klassíkur heitur brauðréttur með skinku og brokkolí stendur alltaf fyrir sínu hvort sem tilefnið er afmælisveisla, saumaklúbbur, ferming nú eða bara kvöldmatur. Innihald 12 sneiðar fransbrauð 1 stk. lítill brokkolíhaus 1 stk. paprika 1⁄2 stk. blaðlaukur 250 g skinka 1 stk. piparostur frá MS 1⁄2 stk. Mexíkóostur frá MS 500 ml rjómi frá Gott í matinn 100 g rifinn pizzaostur frá Gott í matinn ólífuolía salt og pipar Skref 1 Skerið skorpuna af brauðinu, brokkolí í munnstóra bita, saxið niður papriku og blaðlauk og skerið skinku í teninga. Steikið brokkolí upp úr ólífuolíu og hellið svo eins og 3 msk. vatni yfir til að mýkja það aðeins. Bætið meiri olíu á pönnuna þegar vatnið hefur gufað upp og steikið papriku og blaðlauk með þar til allt fer aðeins að mýkjast. Saltið og piprið eftir smekk Skref 2 Smyrjið eldfast mót að innan með ólífuolíu (eða smjöri) og raðið tvöföldu lagi af brauðsneiðum í botninn. Hellið þá steiktu grænmetinu jafnt yfir brauðið og dreifið einnig úr skinkunni og búið næ
10 June 2026

Kryddlegin lúða í forrétt
Kryddlegin lúða er einn besti forréttur sem hægt er að bjóða upp á. Fiskurinn matreiðist í sítrónu- og edikilegi og verður unaðslega bragðgóður. Snilldin er að hann er útbúinn daginn áður og látinn bíða í ísskáp. Svo er auðvitað líka hægt að útbúa eftirréttinn daginn áður líka. Þá er svo einfalt að útbúa aðalréttinn samdægurs en hann er yfirleitt mesta fyrirhöfin og þarf oftast að vera heitur. 500 g smálúðuflök, má vera ýsa eða þorskur en lúðan er best safi úr 2 sítrónum 1 msk. sjávarsalt 1 msk. sykur Skerið fiskinn í litla teninga. Blandið sítrónusafa, salti og sykri saman og hærið. Leggið fiskinn í löginn og látið standi í ísskáp yfir nótt eða í 8- 10 klst. Kryddlögur: 4 tómatar 1 græn paprika 10 svartar ólífur, niðursneiddar 4 msk. matarolía 2 msk. hvítvínsedik (hvítt balsamedik) 4-5 dropar tabasco sósa 1 tsk. origano, þurrkað 2 msk. söxuð, fersk steinselja. Blandið öllu saman í skál. Látið sítrónulöginn leka af fiskinum og setjið hann út í kryddlöginn og þá er rétturinn tilbúinn! G
9 June 2026

Kleinurnar sem Garðbæingar elska
Kleinurnar sem Garðbæingar elska og við öll hin líka, því þetta eru bestu kleinurnar.
8 June 2026
