Klassíkur heitur brauðréttur með skinku og brokkolí stendur alltaf fyrir sínu hvort sem tilefnið er afmælisveisla, saumaklúbbur, ferming nú eða bara kvöldmatur.
Innihald 12 sneiðar fransbrauð 1 stk. lítill brokkolíhaus 1 stk. paprika 1⁄2 stk. blaðlaukur 250 g skinka 1 stk. piparostur frá MS 1⁄2 stk. Mexíkóostur frá MS 500 ml rjómi frá Gott í matinn 100 g rifinn pizzaostur frá Gott í matinn ólífuolía salt og pipar
Skref 1
Skerið skorpuna af brauðinu, brokkolí í munnstóra bita, saxið niður papriku og blaðlauk og skerið skinku í teninga. Steikið brokkolí upp úr ólífuolíu og hellið svo eins og 3 msk. vatni yfir til að mýkja það aðeins. Bætið meiri olíu á pönnuna þegar vatnið hefur gufað upp og steikið papriku og blaðlauk með þar til allt fer aðeins að mýkjast. Saltið og piprið eftir smekk
Skref 2
Smyrjið eldfast mót að innan með ólífuolíu (eða smjöri) og raðið tvöföldu lagi af brauðsneiðum í botninn. Hellið þá steiktu grænmetinu jafnt yfir brauðið og dreifið einnig úr skinkunni og búið næst til sósuna.
Skref 3
Hellið um helmingi rjómans á pönnuna og rífið báða kryddostana niður, hrærið þar til báðir hafa bráðnað og bætið þá restinni af rjómanum saman við og hrærið þar til kekkjalaust. Hellið sósunni yfir brauðið og grænmetið. Stráið vel af rifnum osti yfir allt saman og bakið í 180° heitum ofni í um 20 mínútur eða þar til osturinn fer að gyllast.


