BLOG
Skonsur
Það þarf nú ekki að segja margt um skonsur, annað en að þær eru mjög góðar, henta vel sem morgunmatur með alls konar áleggi, passar meira að segja að setja á þær beikon og egg og allt, ef sá er gállinn á manni. En bestar finnst mér þær alltaf bara með smjöri og osti.
31 May 2026
Chili sulta
Besta sulta í heimi. Og já ég gat aldrei borðað sultu fyrr en ég kynntist þessari dásemd, sem tengist líklega frekar því að ég borða ekki ber, heldur en að ég borða ekki sultu, en 95% af sultum eru gerðar úr berum eða það finnst mér alla vega.
30 May 2026
RJÓMAGÚLLASH
Jæja að beiðni dótturinnar þá set ég hér með uppskriftina að rjómagúllasinu okkar Þráins en það er fyrsti sparirétturinn sem við lærðum að elda fyrir utan læri og hrygg. Þetta hefur verið uppáhaldsmaturinn okkar ansi lengi eða síðan við bjuggum í Foldahrauninu og árið var líklega 1983. Fyrst höfðum við alltaf franskar með en á síðari árum höfum við farið meira út í brytjaðar kartöflur bakaðar í ofni og þetta skiptið krydda ég þær með salti og hvítlauksdufti og auðvitað fullt af smjöri. En sem sagt svona er uppskriftin: Lambagúllash 800 gr. 1 – 2 laukar 2 paprikur fullt af sveppum kartöflur Við byrjum á að skera kartöflur niður, krydda og henda inní ofn við 200 gráður. Síðan er laukur, paprika og sveppir skorið niður og steikt á pönnu í smjöri, það er síðan tekið af pönnunni meðan lambagúllashið er steikt einnig í smjöri. Gúllashið er kryddað með salti, piffikryddi og sítrónupipar. Þegar stutt er í að kjötið sé tilbúið er grænmetismixinu hellt yfir á pönnuna og rjóma hellt yfir allt í
29 May 2026
Rækjurétturinn hennar Önnu Svölu
Einfaldur og góður réttur sem klikkar aldrei. En mundu að það þarf að eiga hvítvín til að geta gert hann 100%.
28 May 2026
Kjúlli með sveppum og parmesan
Þetta er einstaklega góður kjúklingaréttur sem tikkar bara inn í alla braðlaukana, sérstaklega ef borinn fram með hvítlauksbrauði.
27 May 2026
Gratineraður fiskur
með papriku og camembert osti. Algjört sælgæti þessi fiskréttur.
26 May 2026
This blog isn’t available right now. Try refreshing the page or check back later. Sorry for the inconvenience
Privacy policy

OK