
FLATKÖKURNAR HENNAR SESSELJU LANGÖMMU
Ég var að fá uppskrift af flatökunum hennar Laufeyjar ömmu og prófaði að baka þær í dag og YES þær eru svo góðar og svo komst ég að því að þessa uppskrift erfði amma frá Sesselju mömmu sinni og því er hún að fara í 4 legg núna og fljótlega í þann 5 ef við geymum hana vel. Flatkökurnar hennar Sesselju langömmu 5 bollar hveiti 1 bolli rúgmjöl 1/2 tsk matararsóti 2 tsk salt 1 mats sykur Soðið vatn 5 dl Ölum þurrefnunum blandað saman, sjóðandi vatni ( ég nota hanska) helt saman við og hnoðað vertu eins fljót og þú getur að hnoða annars verða þær seigar. Þú verður að giska á vatnsmagnið og skiptir svo deginu í kúlur og fletur út ekki of þunnar. Muna að stinga svo með gafli í kökurnar meðan þú bakar þær. Best að baka á hellu úti eða nota gamaldags pönnukökupönnu úr stáli. Ég nota gamla stálpönnukökupönnu á hellunni úti, sumir setja beint á helluna en mér finnst þetta snyrtilegra og sé engan mun á kökunum. Þessi stafli er 3föld uppskrift en ég geri deigið 3svar, margfalda ekki uppskriftina í
10 April 2025

SODAKAKA
Ég ætlaði að fara að gera gamaldags sódaköku en fann ekki uppskrift að henni, fann uppskrift að sandköku og breytti henni aðeins. Innihald: 200 gr smjör 150 gr sykur 3 egg 250 gr. hveiti 1 tsk lyftiduft 1 dl vanillusósa (piano) Þeyta vel saman sykur og egg og bæta svo smjörinu í og þeyta áfram. Hveiti, lyftiduft og vanillusósu síðan bætt útí og hrært smá stund. Að lokum helt í formkökuform, sett inn í kaldan ofn með stillt á 180 gr. Bakað í 45 mín. eða þar til ekkert deig kemur á prjóninn þegar stungið er í kökuna. Njótið! Ykkar Stína á Nesan
10 April 2025

Airfryer eldun
10.12.2022 Airfryer eldun, er frábær listi yfir helstu eldunaratriði í Airfryer eða Lofti eins og ég kalla hann. Hérna gefur að sjá grunnhita og tíma sem þarf til að elda í AirFryer.
10 April 2025
