
Súrdeigsbrauð frá grunni
Uppskrift frá Kornax hveiti en ég er búin að skipta út íslenskum hveititegundum í norskar. Súrdeigsbakstur í heimahúsum hefur verið í miklum vexti undanfarin ár og margir farnir að spreyta sig við að laga súr og baka úr honum allskyns brauð. Ferlið við súrdeigsbakstur getur virst flókið og krefst fyrirhafnar. Því höfum við tekið saman myndband sem sýnir á einfaldan hátt hvernig ferlið er frá því að súrinn er lagaður þartil fyrsta súrdeigsbrauðið er tekið úr ofninum. Vonandi nýtist það einhverjum við fyrstu skref súrdeigsbaksturs. Aðferð Brauðsúr – Grunnur Það tekur yfirleitt 7-10 daga að gerja brauðsúr frá grunni þannig að hægt sé að nota hann með góðu móti í brauðabakstur. Þú þarft að eiga ca. tvær glerkrukkur 300-500 ml með loki sem búið er að gata þannig að vel fari um súrinn í þroskaferlinu. Brauðsúr – Uppskrift 60 gr. Vatn ( 26-29°C ) 30 gr. Siktet Speltmel 30 gr. Sammalt Rugmel Dagur 1 Blandið ofangreindum *hráefnum með sleif í glerkrukku og setjið lokið á ( með loftgötum ), og lá
17 November 2025

Hafraklattar með döðlum
250 gr sykur 200 gr púðursykur 250 gr smjör við stofuhita 4 egg 300 gr hveiti 1 tsk lyftiduft 2 tsk kanill 1 tsk salt 470 gr Til hamingju gróft haframjöl 50 gr Til hamingju gróft kókosmjöl 100 gr Til hamingju saxaðar döðlur Sykur (báðar tegundir) og smjör hrært saman í hrærivél þar til létt og ljóst. Eggin sett út í, eitt í einu og skafið niður á milli. Því næst er restinni af þurrefnunum blandað saman við og hrært rólega þar til vel blandað. Að lokum er haframjöli, kókosmjöli og döðlum bætt útí og hrært saman við með sleif. Ofninn hitaður 180°C og kúlur mótaðar úr góðri matskeið og þrýst létt ofan á hverja, raðað á bökunarplötu og bakað í 15-20 mínútúr (bakið minna ef þið viljið seigari, meira fyrir stökkari). Uppskriftin gefur um 50 stk og dásamlegt að eiga þær í frysti til að stinga í nestisboxið.
17 November 2025

KJÚKLINGA- OG GRÆNMETISBORGARI
Ég tók 400 gr. af kjúklingahakki, hálfan poka af (250 gr.) blönduðu grænmeti (frosnu í poka) sauð grænmetið og maukaði og blandið síðan saman við kjúklingahakkið ásamt einu eggi og svolitlu af raspi því kjötdeigið var svo blautt án raspsins, ég vissi ekki alveg hvað ég ætti að nota til að þykkja deigið og vildi ekki nota hveiti svo þetta varð niðurstaðan. Steikti í 20 mín á 180° í Lofti (Airfryer). Hitaði hamborgarabrauð og setti steiktan lauk og kokteilsósu undir og hafði gúrkusalat með “on the side” (þetta sama gúrkusalat og ég hafði með laxinum og nýja rúgbrauðinu í gær. Geggjað gott og lítur líka bara vel út.
10 April 2025

NESAN HRÖKKBRAUÐIÐ
Ég er búin að hugsa um það í talsverðan tíma að gera eigið hrökkbrauð og man bara hversu gott mér fannst hrökkbrauðið hennar Ingu en Inga er orðin svo gömul að þegar maður biður um uppskrift þá hljómar hún eins og amma í gamla daga, smávegis af þessu og slatti af hinu. Gott og vel þegar maður kann eitthvað en í fyrsta sinn verður að vera mælieining svo ég fann mér norska uppskrift svo ég væri viss um að kaupa rétt í þetta (efnin heita kannski ekki það sama en þegar ég svo fór að græja og gera, þá fannst mér ég verða að blanda í þessa uppskrift svolitlu frá Ingu þannig að þetta endar sem glæný uppskrift ala Stína á Nesan. 125 g nøtter/mandler (jeg bruker mest mandler) 3 dl solsikkerkjerner 1 dl linfrø 1 dl sesamfrø smávegis af Chiafrø örlítið af pumkinfrø 2 ss fiberhusk 1 egg 1 ts salt 5 dl vann slatti af rifnum osti og smávegis af parmesanosti Möndlurnar eru malaðar og síðan öllu blandað saman í skál og leyft að taka sig smá stund. Síðan dreift á tvær ofnplötur (smjörpappír hafður und
10 April 2025

KLEINUR
Uppskrift: 1 kg hveiti 250 gr sykur 100 gr smjör/smjörlíki 3 egg 1/2 tsk salt 2 tsk lyftiduft 4 tsk vanillusykur 5 dl súrmjólk Aðferð: Þeytt saman sykur og eggjum og síðan smjörinu bætt útí og þeytt áfram vel. Svo er öllum þurrefnum bætt útí ásamt súrmjólkinni og hnoðað í hrærivél. Öllu hvolft á hveitistráð borð og hnoðað mjög vel, hveiti bætt við eftir þörfum. Deigið á að vera aðeins blautt en þó þannig að það sleppi bæði höndum og borðplötunni. Síðan er hluti af deiginu klipinn af, og flattur út á vel hveitistráðu borði, ca. hálfs cm. þykkt og skorið út í kleinur. Ef þið eigið ekki kleinujárn má t.d. hnota beittan hníf eða pizzuskera. Skorin er lítil rauf í miðjuna á hverri kleinu og öðrum enda kleinunnar ýtt í gegnum raufina. Gott er að steikja kleinurnar uppúr 1 tólgardós á móti 2 palmín-stykkjum! En hérna í Noregi nota ég eingöngu Flott feiti. Ef feitin verður of heit verða kleinurnar of dökkar of hratt en hráar inní. Þegar ég byrjaði að steikja var ég bara með 6 i einu en endaði
10 April 2025

BANANABRAUÐ
16.02.2016 Jæja gott fólk enn og aftur kem ég sjálfri mér á óvart með að breyta, bæta og laga uppskriftir en ég ákvað að baka bananabrauð af því að ég átti 3 ónýta banana en eftir flutninga veit ég ekkert hvað ég gerði við uppskriftirnar sem voru uppá vegg hjá mér á gamla staðnum og því fór ég og gúgglaði bananabrauð en sorrý ég var ekki alveg ánægð með uppskriftina og ákvað að breyta henni mér í vil og þetta er besta bananabrauð sem ég hef smakkað svo ég ætla að gefa ykkur þessa uppskrift svo þið getið prófað sjálf. 2 egg 1 bolli sykur 50 gr. smjör 2 bollar hveiti 1 tsk matarsódi 1/2 tsk salt 1 tsk kanill 3 litlir bananar Egg og sykur þeytt saman og smjörinu bætt svo útí og þeytt áfram vel. Öllu öðru síðan bætt útí og hrært saman, ekki þeyta. Bakað í ofni við 180° þar til það er tilbúið. Ekki spyrja mig um tíma því maður sér bara hvenær það er farið að losa sig frá forminu og endarnir orðnir vel brúnir, mér finnst betra að baka bananabrauð aðeins lengur en normalt og núna gerði ég það
10 April 2025
