eða ekki! Mér fannst ég bara verða að fara að blogga aftur en veit í rauninni ekki alveg hvað ég ætti að blogga um í dag. Ég er búin að vera mjög löt að blogga í allt sumar, en það er nú normalt fyrir mig, ég blogga bara í tölvunni og eins og þetta sumar er búið að vera þá hef ég setið úti í Slotti ef ég hef ekki verið á ferðalagi. En nú er búið að rigna í 4 daga og þá er meira setið inni. Ég er búin að vera rosalega dugleg að labba í síðustu viku en ég kem mér bara ekki að því að labba í súld eða rigningu, en þarf að læra að koma hugarfarinu þangað. Það tekst og vonandi fljótlega. En ég er einnig búin að vera dugleg að taka myndir, núna síðustu vikurnar en alls ekki í allt sumar, ég hreinlega hélt ég væri búin að tapa neistanum en nei nei, svo er nú ekki og greinilegt að stundum þarf maður að hvíla sig og líka á því sem er skemmtilegast.

En sumarið er búið að vera geggjað, ég byrjaði á að fara til Íslands og eyða tíma mest með Konný systur en einnig hitti ég öll systkinin mín og við vorum öll á sama staða á sama tíma og þá var hent í myndatöku. En hérna gefur að líta myndir úr Íslandsferðinni.

Svo fór ég á goslokahátíð í eyjum og þetta er svo sannarlega uppáhaldshátíðin mín, ekki spurning. Og ennþá meira gaman að vera með Konný sem veit um alla listviðburði og þekkir nánast alla listamennina, ég reyndar saknaði þess að ekki væri blústónlist einhvers staðar en að sjálfsögðu var Todmobil tónleikarnir algjörlega geggjaðir svo ég kvarta ekki. Ég var og er ennþá með nokkrar myndir til sölu í Gallerý Skúrinn og tók vaktir þar, sem var bara geggjað gaman. Vonandi verðum við hjónin saman á næstu goslokum.

Fljótlega eftir heimkomu skelltum við hjónin okkur til Danmerkur og byrjuðum á að kíkja á Önnu Fanney sys og héldum svo niður eftir DK alveg að þýsku grensunni og hittum Stefaníu og Smára en Þráinn og mamma Stefaníu eru systkinabörn. Þar gistum við í eina nótt og skelltum okkur svo með lest til Köben og þar vorum við í 2 nætur, mjög gaman en ég klúðraði hótelpöntuninni og pantaði þetta líka flotta hótelherbergi á efstu hæð með svölum en æ æ þetta var ekki hótel, heldur hostel og herbergið svo lítið að annað okkar þurfti að fara út til að hitt kæmist fram úr rúminu. En ég læri á þessu og jú jú þetta er geggjað hostel fyrir ungt fólk sem ekki stoppar eina mínútu á hótelherberginu en við gamla settið ætluðum nú að sitja úti á svölum með vínglas og kósa okkur en það var ekki hægt því svalirnar voru líka svo litlar og stútfullar af plöntum. Og já ekki hægt að fá glös á barnum niðri nema plastglös og ég var spurð fyrir hvað ég ætlaði að nota þau. What? Fyrir vatn sagði ég, eins og bjáni og stúlkan sagði að venjulega rukkuðu þau fyrir plastglösin og sko ég er bara að tala um venjuleg plastglös ekki harðplastglös heldur bara svona einnota og ég sagðist alveg geta borgað fyrir mín glös en íhugaði nú að hlaupa bara út og kaupa mér glös útí búð en fékk þessi 2 plastglös ókeypis því hún var svo góð þessi stúlka. Það sem mér fannst samt kannski mest áhugavert í Köben er Kristjanía og það umhverfi. Ótrúlega sjarmerandi að sjá hvað fólk getur gert úr annars manns rusli og breytt í list og allt krotið og graffetíið, ég elska þetta. Hérna eru myndir frá Köben. Hérna eru myndir frá Kristjaníu. Og hérna myndir frá Þýskalandi.

Eftir Köben þá fórum við aftur til Stefáníu og Smára og áttum nokkra kósí daga hjá þeim. Þau fóru svo með okkur yfir þýsku landamærin til Flensborgar sem er mjög falleg borg, alla vega niður við sjóinn og eins skoðuðum við kastala þarna sem var ofboðslega fallegur. Ekki hægt að segja annað en að við öfunduðum þau af því að geta verslað í Þýskalandi og ekki síst bjór og vín og mega koma með svo og svo miklu meira en við yfir landamærin en svona er þetta, við völdum að búa í landi þar sem allt er dýrt.

Eftir DK ferðina þá kláruðum við sumarfríið okkar hérna heima, í okkar nærumhverfi og mest bara í sólbaði og kósí í Slottinu okkar, sem reyndar er komið með sína eigin FB síðu og location, þannig að allir sem koma í heimsókn geta sett inn location "Slottet på Nesan". Cool ekki satt?

Ég eignaðist nýtt áhugamál í sumar, en það er að mála á litlar trémandölur með akrýllitum, datt hreinlega bara í þetta og mundi þá hvað mér fannst alltaf gaman að lita sem krakki og unglingur og já ég 15 ára átti geggjaða litabók og stæðsta litakassa sem hafði sést á Íslandi þá (ef ekki víðar). Hef líka hugsað mikið til mömmu þegar ég er að lita mandölurnar því ég er viss um að henni hefði þótt þetta skemmtilegt. Kannski hún sé að lita mandölur þarna uppi í efra, hver veit.

En sorg sumarsins var þegar við þurftum að fara með Prins Erró og láta svæfa hann, þar sem hann var orðinn heyrnalaus, hálfblindur, með krabba og illt hér og þar. Erfið ákvörðun það en þegar dýralæknirinn sagði að við hefðum komið með hann á hárréttum tíma hans vegna leið okkur betur. En það er tómlegt án hans. 13 ár saman og ég bara búið 1 viku í Noregi áður en hann fæddist svo það er alveg nýtt fyrir mér að búa í Noregi og hafa ekki Erro hjá mér (okkur).


Besti hundur í heimi, glaðasti hundur í heimi sem aldrei gelti og gegndi alltaf þar til hann missti heyrnina. Við gætum líklega aldrei fengið okkur annan hund því hverjar væru líkurnar að fá annan eins gæðing og þennan prins. Þín verður sárt saknað Erró, það er enginn hundur eins og þú.

Og sjáiði þessi augu!

Þangað til næst, ykkar Kristín Jóna