Jæja þá er ég komin heim eftir vel heppnað frí á Íslandi.
Fyrst sjáum við nokkrar myndir frá Þingvöllum, það var svo dásamlegt að vera í litla kotinu okkar þar, þrátt fyrir fluguna.
Svo skruppum við systur saman í bíltúr og hérna eru 3 myndir frá fjörunni á Stokkseyri.
Þessi krúttlegu hús eru á Stokkseyri.
Og svo koma nokkrar myndir frá Eyrarbakka sem er krúttlegasti bær ever og ef ég flyt til Íslands aftur, þá langar mig að búa þar.
Og að sjálfsögðu þurfi að stoppa og taka nokkrar hestamyndir sem voru samt ekki nógu góðar hjá mér, en þessi var til í að láta mynda sig.
Fleiri stopp voru gerð, vitinn, og hvítu sykurpúðarnir eða birtan og fjallasýnin á bakvið þá sem heillaði mig.
Og þá erum við komin til eyjunnar fögru og gosloka litahlaupið með flottasta bakgrunninn, sjálfan Heimaklett.









































