Sumir dagar byrja á þann hátt að maður er alveg viss um að það verði ekkert úr þeim.
Ég vaknaði þennan morgun óvenju þreytt og með einhverja óskiljanlega verki. Ég skellti mér samt í vinnuna, kom heim, fékk mér að borða og lagði mig – eins og ég geri oft þessa dagana.
Þegar ég vaknaði aftur leið mér ekkert sérstaklega betur. Ég hugsaði með mér:
"Ég er örugglega bara að verða eitthvað lasin."
Og þar sem það var ekkert sérstakt á dagskrá ákvað ég að leyfa mér bara að vera í leti. Við höfðum verið með gesti í nokkra daga og stundum þarf maður einfaldlega að gefa sér leyfi til að gera ekki neitt.
Það var allavega planið...
Bara aðeins að kíkja á nokkrar myndir...
Ég fór samt aðeins niður í vinnuherbergið.
Ég ætlaði bara að skoða nokkrar myndir sem ég hafði verið að taka síðustu vikurnar. En eins og svo oft áður varð "bara aðeins" að einhverju allt öðru.
Allt í einu var ég farin að velja myndir fyrir In Stillness, myndaflokkinn minn á Mirra.no.
Auðvitað kallaði ég á Gurrí.
Við fórum yfir myndirnar saman. Hún valdi sínar uppáhalds, ég mínar og svo bárum við saman valið. Það var ótrúlega skemmtilegt að sjá hvað við vorum oft sammála – og ekki síður áhugavert þegar við vorum það ekki.
Þegar við vorum búnar ákvað ég að fá líka álit frá Konný systur og Þráni. Betur sjá augu en auga.
Meðan ég beið eftir þeim... fór ég að fá mér kaffi.
Já og það er ekki í frásögur færandi því við keyptum okkur nýjan ketil sem kom í fyrradag og er svooooo flottur að ég þurfti hreinlega að breyta öllu í eldhúsinu til að hann myndi njóta sín.
Finnst ykkur hann ekki flottur og passa mér og mínu græna eldhúsi?
Mintgræni liturinn passar svo vel við grænu skápana að allt í einu fannst mér rauðu eldhústækin mín vera farin að kalla aðeins of hátt á athyglina.
Þá kviknaði ný hugmynd.
Kannski ættu jólagjafirnar í ár bara að vera...
...brauðrist.
...kaffivél.
...hrærivél.
Allt í sama fallega Ariete-lúkkinu.
En svo var það brauðboxið...
Ég reyndi að halda áfram að vinna myndirnar. Í alvöru!
En í hvert skipti sem ég leit upp sá ég þetta appelsínugula brauðbox. Oh það truflaði mig svo mikið að ég gafst upp.
Þá mundi ég allt í einu eftir litlum trékassa sem hafði verið notaður í brúðkaupi Mirru og Helge. Kannski gæti hann orðið nýtt brauðbox?
Ég sótti hann... ...og auðvitað var hann of ljós.
Þarna fór heilinn aftur af stað.
Á ég að mála hann grænan eins og skápana? Eða bæsa hann brúnan eins og borðplötuna?
Ég spurði Þráin. Ég spurði Gurrí.
Og Gurrí málaði meira að segja kassann á mynd fyrir mig í báðum litum svo ég gæti séð muninn.
Hér koma myndirnar.
Hvaða lit hefðuð þið valið?
Og hvað haldiði að ég hafi valið?
Auðvitað varð hann brúnn
Ég hugsaði mig um... í svona þrjár sekúndur. Svo varð kassinn brúnn. Auðvitað.
Hann tengir borðplötuna, skurðarbrettið og allan hlýja viðinn í eldhúsinu saman miklu betur en græni liturinn hefði gert.
Stundum veit maður svarið um leið og maður sér það.
Hvað haldiði að bóndinn hafi verið að gera?
Á meðan ég var að...
- velja myndir,
- vinna myndir,
- færa til í eldhúsinu,
- mála kassa,
- elda kvöldmat,
- drekka kaffi,
- ræða við Gurrí,
- og plana jólagjafir...
...var Þráinn úti í bílskúr.
Hann var að skipta um sagarblað.
Prófa nýju bílskúrsryksuguna sína.
Og taka til.
Við vorum sem sagt bæði upptekin við að...
gera ekki neitt.
😂
Dagurinn sem átti að verða letidagur
Um kvöldið horfði ég yfir eldhúsið. Brauðkassinn var orðinn brúnn. Eldhúsið hlýlegra.
In Stillness hafði eignast nýjar myndir.
Kvöldmaturinn var tilbúinn.
Og ég fann að mér leið miklu betur. Kannski var ég ekkert lasin. Kannski þurfti ég bara einn svona dag þar sem sköpunin fékk að ráða ferðinni.
Við fengum okkur svo einn kaldan í verðlaun. Við áttum hann alveg skilið.
Þangað til næst, ykkar Kristín á Nesan (og Þráinn).
P.S. Í lok dagsins var valið á myndunum fyrir In Stillness loksins komið á þann stað að ég er farin að sjá nýtt safn taka á sig mynd. Ef þið viljið fylgjast með þegar þær birtast í versluninni, kíkið endilega reglulega inn á Mirra.no.







