Ef þú átt súrdeig, þá er þetta ferlið 2svar í viku ef þú vilt baka brauð svo oft, annars bara einu sinni í viku. Ef þú bakar ekki brauð daglega þá geymum við súrinn í ísskáp, annars bara á eldhúsborðinu.
Daginn áður en brauðið er bakað, þarf að fæða súrinn.
Takið ca. 180 gr af súrnum og setjið í hreina glerkrukku og blandið ofangreindum *hráefnum varlega saman við með sleif og lokið krukkunni ( lok með götum ). Hendið restinni af súrnum !
Brauðsúr – Uppskrift
60 gr. Vatn ( 26-29°C )
30 gr. Siktet Speltmel
30 gr. Sammalt Rugmel
Fordeig lagað fyrir bakstur
Eftirfarandi uppskrift er blandað saman daginn áður en búa á til brauð.
40 gr tilbúinn brauðsúr
100 gr vatn 26-29°C
50 gr Siktet Speltmel
50 gr Sammalt Rugmel
Súrdeigsbrauð – Uppskrift (athugið ég er búin að breyta þessari uppskrift)
300 gr Vatn (ylvolgt)
120 gr Fordeig
200 gr Siktet Speltmel
200 gr Sammalt Speltmel grovmalt
100 gr Grovbakst
15 gr Flögusalt
1. Vatn, fordeig og allt mjöl er unnið saman í höndunum eða hrærivélaskál með krók á minnsta hraða þar til allt er komið saman ( ca. 2 mín ). Hvílt í skálinni í 30 mínútur.
2. Saltinu bætt útí deigið og unnið saman í ca. 2 mínútur. Hvílt aftur í 30 mínútur.
3. Þá er deigið tekið, teygt á því og sitt hvor endi deigsins lagður inn að miðju á deigstykkinu. Þetta er endurtekið 3-4x með 20 mínútna millibili. Passa að rífa ekki deigið í þessu ferli.
4. Því næst er deigið formað varlega upp í kúlu og deigkúlunni komið fyrir í skál sem búið er að sáldra heilhveiti inn í. Muna að láta sárið á kúlunni snúa upp.
5. Rakt stykki eða plast lagt yfir og brauðið hefað í stofuhita í ca. 3-4 tíma.
6. Þegar brauðið er hefað er skálinni hvolft og brauðinu komið fyrir á ofnplötu sem búið er að sáldra heilhveiti yfir. Munið að skera munstur eða langskurð í brauðið áður en það fer í ofninn.
7. Sett inn í ofn á 230°C (blástur) og skvetta smá vatni með inn í ofninn til að fá betri skorpu. Lækka hitann í 210°C og baka í ca. 30-45 mínútur (mismunandi ofnar).
Fann aðra uppskrift af súrdeigsbrauði sem ég ætla að prófa líka.
Súrdeigsbrauð Rögnu
- 600 g manitoba hveiti
- 390 g vatn (30°C)
- 120 g súr
- 12 g salt
Aðferð:
- Blandið saman hveiti og vatni og látið standa í 30 mínútur.
- Bætið súrnum í og hnoðið létt.
- Bætið saltinu við og hnoðið aftur.
- Gerið fjórum 4 „coil and fold„ með 30 mínúta millibili og látið svo deigið standa óhreyft skálinni í 3-4 klukkustundir eða þar til það hefur tvöfaldast að stærð.
- Takið deigið úr skálinni og setjið það á borð.
- Mótið það í kúlu og bíðið í 20 mínútur.
- Eftir 20 mínútur er deigkúlunni snúið við og deigið mótað aftur til að hefast.
- Sett inn í ísskáp yfir nótt og bakað daginn eftir.
- Forhitið ofninn í 1 klukkustund í 260°C hita með steypujárns eða keramikpotti eða öðru íláti sem þolir að vera í ofni.
- Takið brauðið úr kæli og setjið á bökunarpappír, skerið rauf í toppinn á því og setjið í pottinn og lokið honum.
- Bakið í 20 mínútur með lokaðan pott, takið lokið af, lækkið hitann niður í 210°C hita og bakið áfram þar til brauðið hefur náð karamellubrúnum lit.
- Látið kólna í klukkustund áður en það er skorið.
- Muna að gefa sér tíma, ekki gefast upp þó þetta verði ekki fullkomið í fyrstu tilraununum.

