Á leiðinni heim úr vinnu var heimurinn rétt að byrja að teygja úr sér.
Vegirnir lágu kyrrir, vetrarljósið mjúkt og föllegt, og sólin steig hægt upp yfir hæðirnar, næstum óséð.
Ég ók áfram í þessari stillu, umvafin kyrrðinni, og fann hvernig augnablikið festist — ekki bara á myndunum, heldur líka innra með mér.
Svona morgnar minna mig á að fegurðin býr oft í því sem gerist hljóðlega, á meðan dagurinn er enn að vakna. Þess vegna elska ég að vakna snemma og mér persónulega finnst sólarupprásin það fallegasta í heimi.






