Við hjónin fórum í göngutúr um daginn inní Mandal og ákváðum að labba Sjøsanden því það er ansi langt síðan síðast. Man næstum ekki eftir að hafa labbað þarna í snjó áður, sem er mjög skrítið. Eða ekki því ég er ekki mikið fyrir göngutúra í snjó en nú þegar snjórinn hefur verið hér síðan um áramót þá þýðir ekkert annað en að taka stöku göngutúr. Færðin er ok ef maður heldur sig á göngustígum en við ætluðum að fara í gegnum skóginn á bakaleiðinni og lentum bara í því að hoppa (því snjórinn var svo mikill) okkur út á strönd og göngustíg aftur. Þannig að þetta endaði sem göngutúr fram og til baka með smá hoppsnúningi.
Þangað til næst, ykkar Kristin á Nesan.









