Ég var búin að ákveða að hafa fisk í matinn í kvöld, svo datt mér í hug að baka flatkökur og þá ákvað ég að hafa bara soðinn fisk með kartöflum og smjöri en þegar til kom, datt mér í hug ný uppskrift af plokkfisk. Plokkfiskur á pönnu, ekki með hveitisósu þar sem ég forðast hveiti en datt í hug að nota fiskisósuna frá Lofoten. Geggjað gott.