Þegar ég var lítil var ég myrkfælin. Ég man ekkert sérstaklega eftir því sem smábarn, en strax eftir tíu ára aldur man ég mjög vel að ég gat aldrei sofið í herbergi þar sem ekkert ljós var kveikt. Það þurfti ekki endilega að vera flóðlýsing, ég var ekki að reyna að halda uppi flugvellinum í Vestmannaeyjum, en það varð að vera einhver ljóstýra. Bara svo ég vissi hvar ég væri stödd ef eitthvað skyldi nú gerast.
Og ef ég þurfti að labba heim að kvöldi til í myrkri, þá söng ég alltaf hástöfum.
Ekki bara smá raulaði með sjálfri mér, nei nei. Ég söng. Hástöfum.
Ástæðan var auðvitað alveg rökrétt í mínum barnshuga. Fólkið í húsunum í kring varð að vita að þarna væri lítil stelpa að labba heim. Og ef hún skyldi allt í einu hætta að syngja, þá myndi fólk vonandi átta sig á því að eitthvað hefði komið fyrir hana.
Algjörlega vatnsþétt öryggiskerfi, ekki satt?
Ég sé þetta alveg fyrir mér núna. Lítil, grönn, ljóshærð stelpa í grænum buxum á gangi eftir dimmri götu og syngjandi af öllum lífs og sálar kröftum. Fólkið inni í húsunum hefur örugglega hugsað: „Já, þarna fer hún aftur.“
Hvort einhver hafi sagt mér draugasögur sem ollu þessari myrkfælni veit ég ekki, en ég held í alvörunni ekki. Draugasögurnar komu ekki inn í líf mitt fyrr en í skíðaferðum í gagnfræðaskólanum og þá voru þær mest til að hafa gaman af og auðvitað til að hræða hver annan smá.
Sjálf sagði ég alveg oft draugasögur til að „hræða“ aðra, en það var yfirleitt meira í gríni en alvöru. Ég tengi það heldur ekkert við eigin myrkfælni.
En núna undanfarið hef ég verið að spá dálítið í þessa myrkfælni vegna þess að ég verð bara að viðurkenna að hún er ennþá til staðar.
Já.
Ég er ekki að grínast.
Ég er 63 ára gömul og ennþá myrkfælin.
Ég er með kveikt á lömpum í öllum hornum allan sólarhringinn. Það þarf helst að vera smá ljóstýra í svefnherberginu mínu, því mér finnst fátt verra en að vakna í kolsvörtu myrkri. Ég veit ekki alveg hvað ég ímynda mér að sé þarna þegar ég vakna, en ég vil greinilega ekki taka áhættuna á að komast að því.
Að beiðni gesta í sumarhitanum setti ég myrkragardínu fyrir stóra gluggann í svefnherberginu mínu. Það var auðvitað mjög gott fyrir gestina og örugglega líka fyrir svefninn þeirra.
Ég hins vegar?
Ég var ekki lengi að taka hana niður aftur.
Nú þegar sumrinu er farið að halla er ég komin með gardínu sem ég sé í gegn. Mér finnst nefnilega svo dásamlegt að vakna við morguninn. Ekki endilega við glampandi sól sem skín beint í augun á mér, en ég vil sjá að það sé að birta.
Ég vil sjá dögunina.
Það er eitthvað svo fallegt við að vakna og sjá að nóttin sé hægt og rólega að víkja fyrir deginum. Kannski er það þess vegna sem ég er svona mikill morgunhani. Ég elska morgnana og dögunina miklu meira en sólsetur.
Núna er þetta samt orðið þannig að þegar ég vakna klukkan 5.30 er ennþá myrkur úti og það fer ekki að birta almennilega fyrr en einhvern tímann milli sex og hálf sjö.
Og ég verð að viðurkenna að mér finnst þetta bara alls ekki skemmtilegt. Ég gæti auðvitað bara sofið lengur.
En nei! Ég er svo vanaföst að það er greinilega einfaldara fyrir jörðina að hætta að snúast en fyrir mig að breyta því hvenær ég vakna.
Sama er með myrkrið á kvöldin. Ég fer helst ekki út úr húsinu þegar það er orðið dimmt. Jú jú, ég fer alveg út í Slott, en það er auðvitað ekki það sama. Garðurinn er allur upplýstur þannig að ég er aldrei í mjög miklu myrkri.
Reyndar stend ég mig stundum að því að hugsa:
Hvað er fólk eiginlega að þvælast úti þegar það er komið myrkur?
Ég meina, hvað er svona mikilvægt að gera úti í myrkrinu? Og að ég tala ekki um fólk sem fer í göngutúr í myrkri. Ha! Þú sérð ekki neitt og upplifir ekki neitt. En það er kannski akkúrat líka svo mikið ég, ég fer ekki í göngutúr nema á fallega staði, þar sem eitthvað gleður augað. Já það þarf alltaf að vera að gleðja augað.
Svo um daginn, þá var ég að horfa á einhverja þætti sem gerðust í einhverju landi þar sem greinilega var komið myrkur fyrir kvöldmat, þrátt fyrir að vera sumarveður yfir daginn. Og ég hugsaði bara:
Guð minn góður, hvað myndi ég gera ef ég byggi í svona landi?
Ég gæti bara varla farið út í búð eftir hádegi.
„Nei takk, ég kem aftur í apríl þegar það er bjart.“
Ha ha ha!
En sko, ekki halda að þessi myrkfælni hafi háð mér eitthvað sérstaklega í gegnum lífið. Ég fer að sjálfsögðu út þegar ég þarf. Bara rosalega sjaldan þegar það er orðið dimmt og helst ekki að ástæðulausu.
Og ég vil helst ekki keyra í myrkri.
Það hefur reyndar líka eitthvað með augun mín að gera. Ljósin frá bílunum sem koma á móti fara svo í augun á mér og stundum líður mér eins og ég verði alveg blind í smástund.
Og Guð minn góður ef það er rigning í ofanálag! Þá er stresslevelinn minn kominn upp úr öllu valdi.
Myrkur. Rigning. Bílljós og blautir vegir sem endurkasta ljósunum. Og ég, við stýrið haldandi dauðahaldi í það, hugsa ekki um annað en að komast heim.
Heim í kósí lýsingu, með lampa í hverju horni og kertaljós í stofunni.
Og vona að ekkert valdi því að ég verði að fara út aftur.
Þá er ég komin aftur að þessu með augun og myrkrið og fór að velta fyrir mér hvort það gæti verið einhver tenging þarna á milli.
Ætli ég sé myrkfælin vegna þess að augun mín þola verr ljósið í myrkrinu en önnur augu? Eða sé ég einfaldlega verr í myrkri en næsti maður?
Eða er þetta kannski bara einhver gömul barnahræðsla sem hefur ákveðið að fylgja mér alla ævi og segir reglulega:
„Jæja Kristín, nú er orðið dimmt. Hvað eigum við að gera?“
„Kveikja fleiri ljós,“ svara ég auðvitað.
Ætli það sé líka eitthvað samhengi á milli þess að vera myrkfælin og að vera morgunhani? Að elska dögunina meira en sólsetrið? Mér finnst það nú alveg mögulegt.
Það væri reyndar gaman að vita þetta. Já já, ég gæti auðvitað spurt Gurrí, og ég mun líklega gera það, því Gurrí veit hluti sem ég vissi ekki einu sinni að ég væri að velta fyrir mér.
Svo við sjáum bara til hvert svarið verður.
Og akkúrat þegar ég fór að spá í þetta með augun og myrkrið fór ég að lesa mér aðeins til. Það virðist vera þannig að ljós augu, eins og blá augu, geta verið viðkvæmari fyrir sterku ljósi og glampa. Það gæti því alveg verið hluti af skýringunni á því hvers vegna mér finnst sérstaklega óþægilegt að keyra í myrkri þegar bílljósin koma á móti mér, sérstaklega ef það rignir líka og allt endurkastast af blautum veginum.
En svo komumst ég og Gurrí að annarri mögulegri skýringu.
Myrkur getur nefnilega gert okkur óörugg vegna þess að við sjáum ekki eins vel hvað er í kringum okkur og höfum þar með minni stjórn á aðstæðunum.
Og þarna hugsaði ég: Bíddu nú hæg. Ég er nú dáldið stjórnsöm, ég get alveg viðurkennt það. Og mér finnst almennt ekkert sérstaklega skemmtilegt að láta stýra mér og ekki einu sinni láta þig dreyma um að fara með mig í óvissuferð. Ég verð að vita hvert ég er að fara. Hvenær og hvernig og með hverjum. Og helst líka, hvað verður í matinn.
Svo kannski er þetta bara allt saman miklu einfaldara en ég hélt. Kannski er ég ekki bara myrkfælin. Kannski finnst mér einfaldlega óþolandi að geta ekki séð hvað er fram undan og þar með ekki haft fulla stjórn á aðstæðunum.
Og ef það er ekki skýring sem passar mér eins og flís við rass, þá veit ég ekki hvað!
En að lokum langar mig að spyrja ykkur, kæru vinir:
Munið þið einhverjar draugasögur síðan þið voruð lítil?
Eða er maður bara búinn að gleyma þessu öllu?
Ég spurði Google og fékk þá þessa gömlu vísu sem örugglega flestir kannast við, þó ég hafi sjálf verið búin að gleyma henni:
Móðir mín í kví, kví,
kvíðu ekki því, því;
ég skal ljá þér duluna mína
að dansa í
og dansa í.
Já, ok, þetta er ekki sagan sjálf.
En þessari vísu gleymir maður greinilega ekki.
Og nú er ég farin að velta fyrir mér hvort einhver hafi kannski sagt mér eitthvað miklu hræðilegra þegar ég var lítil sem ég hef bara alveg gleymt. Kannski var það draugasaga. Kannski var það eitthvað sem systkini eða vinir sögðu.
Eða kannski er ég bara einfaldlega bara fædd með þá skoðun að svartamyrkur er algjörlega ofmetið fyrirbæri.
Og þannig verður það líklega áfram.
Ég mun halda áfram að vakna snemma, elska dögunina, kveikja á lömpum í öllum hornum og horfa undrandi á fólk sem fer sjálfviljugt út í myrkrið.
Og ef þið sjáið einhvern tíma gamla konu í framtíðinni sitja með ljós í hverju horni, kertaljós á borðinu og smá hræðslusvip í andlitinu, þá skuluð þið bara vita að það er mjög líklega ég.
Og ég er alveg örugg.
Svo lengi sem ljósin eru kveikt.
Þangað til næst,
ykkar Kristín á Nesan ❤️


