Fékk þessa hugmynd á fimmtudaginn, þegar ég fann óvart smjördeig í frystikistunni. Setti saman í huganum á föstudaginn og eldaði svo í gær, laugardag. Ég elska að gera eitthvað nýtt í eldhúsinu og hef reynt að vera dugleg að skrifa niður uppskriftirnar og taka myndir oþh. því hérna áður fyrr þá gleymdist oft uppskriftin manninum mínum til ama. Ég er reyndar svo heppin að honum finnst allt sem ég elda gott og ef hann er á kvöldvakt og með nesti frá mér, eitthvað sem ég eldaði daginn áður, þá hringir hann til að tjá sig um matinn sem er svo frábært því það hvetur mig til dáða. Ég er nefnilega ein af þeim sem þarf að fá hrós reglulega og sæki mér það ef ekkert tilefni hefur verið til að hrósa. En ég mæli með þessum rétti, hiklaust.

