I am sailing....

Auðvitað dettur mér þetta lag alltaf í hug þegar við siglum niður ána í Mandal, þar sem það er eitthvað svo stórfenglegt að sigla í gegnum miðbæinn og sjá hann frá öðru sjónarhorni. Við skelltum okkur í siglingu á sunnudaginn en það var heldur mikil undiralda fyrir minn smekk, þó ég hefði verið búin að athuga vindstigin en þetta er eitthvað sem við þurfum að læra betur á. Vindur 3 metrar getur þýtt háar öldur og undiröldu eins og var þarna. En að sjálfsögðu var dásamlega fallegt og yndislegt að sigla um eyjarnar.