Ég hef verið dugleg að ganga.
Úti í snjónum, úti í kyrrðinni.
Í hverri ferð staldra ég aðeins við – ekki lengi, bara nógu lengi til að sjá.

Hurðir í alls konar litum.
Gluggar nýjir og gamlir.
Sumir opnir, aðrir lokaðir.
Sumir bera spor tímans, aðrir eru nývaknaðir.

Ég veit ekki hverjir ganga um þessi gólf,
hverjir líta út um þessa glugga
eða hverjir loka hurðinni á kvöldin.
En mér finnst eins og húsin tali – lágt, hægt og án orða.

Allt er þetta tekið hér í Øyslebø.
Í gönguferðum þar sem snjórinn dempar hljóðin
og augnablikið fær að vera nákvæmlega eins og það er.

Kannski er þetta bara hurð.
Kannski bara gluggi.
En stundum er það nóg.