Ég held að ég verði bara að viðurkenna það strax: ég botnaði eiginlega ekkert í þessu. 😂

Ég hafði hlakkað til sólmyrkvans 12. ágúst. Ég var búin að ná í gömul sólmyrkvagleraugu, taka símann með mér og meira að segja prófaði ég að halda polariseringsfilter fyrir framan linsuna á símanum.

Ég var svo tilbúin. Og svo kom sólmyrkvinn.

En... sólin skein og það var alveg bjart, ekki svona „smá bjart“. Nei nei. Bara flennibjart. 🌞

Ég sem var búin að vera að bíða eftir þessu mikla myrkri sem ég hafði heyrt um og séð á myndum frá Íslandi og hugsaði eiginlega: Hvað er eiginlega í gangi? Á þetta ekki að verða svart? Ég tók myndir og myndir og myndir.

Á einni þeirra sést meira að segja gamla brúin í kvöldsólinni. Hún var tekin einmitt þegar hámark sólmyrkvans átti að vera. Og þarna stend ég og horfi í kringum mig og hugsa: „Er þetta hámarkið?“ Já. Þetta var hámarkið. 😂

Það sem ég fattaði ekki var að ég var á allt öðrum stað í sólmyrkvanum en fólkið á Íslandi. Hér á Lindesnes var víst bara um 87% af sólinni hulið við hámarkið, en við vorum utan svæðisins þar sem tunglið hylur sólina alveg. Þess vegna hélt sólin áfram að lýsa upp allt í kringum mig. En með sólmyrkvagleraugunum sá ég samt alveg hvað var að gerast.

Sólin varð alveg að litlum banana. Eða eiginlega að pínulitlu tungli. Og það var auðvitað stórkostlegt að sjá en bara alls ekki... VÁ.

Ekki þetta ótrúlega myrkur sem ég hafði séð frá Íslandi. Ekki stjörnurnar. Ekki nótt um miðjan dag. Fuglarnir þagna og fara að sofa, meira að segja kettirnir mínir voru úti með mér allan tímann og þá sást ekki á þeim að eitthvað væri í gangi. Ég fékk aldrei þessa tilfinning sem maður fær þegar sólin hverfur alveg. Þetta var bara ég, gömlu gleraugun mín, síminn og sól sem var greinilega ekkert á því að fara neitt. 😂 Ég var meira að segja eina manneskjan hérna á Nesan sem var úti að glápa.

Fólk var að vinna í görðunum sínum og ótrúlega margir bílar á ferðinni en þeir eru vanir að sjá þessa skrítnu konu út um allt með myndavél og nú sáu þeir hana með skrítin gleraugu á brúnni að taka myndir á símann sinn.

Og þá fór ég að skilja hvað það er sem gerir algjöran sólmyrkva svona rosalega sérstakan. Það er víst ekki bara það að 87%, 90% eða jafnvel 99% af sólinni sé horfin. Það eru síðustu prósentin. Þegar allt lokast. Þá gerist eitthvað allt annað. Og það fékk ég ekki að upplifa. Ég fékk minn litla banana. 🌞🍌 Fólkið á Íslandi fékk myrkrið.

Og nú sit ég hér og hugsa að það sé líklega best að ég sætti mig bara við þetta, því næsti algjör sólmyrkvi sem sést frá Lindesnes er ekki einu sinni í fyrirsjáanlegri framtíð. Timeanddate segir að hann sé ekki sýnilegur þar fyrir árið 2200.

Svo já. Ég missti af VÁ-inu. En ég lærði heilmikið. Og næst þegar ég sé fólk tala um sólmyrkva ætla ég að spyrja: „Já, en varstu í totality?“ Því nú veit ég. 😂🌞🌑 Og ef ég á að vera alveg hreinskilin þá er ég samt mjög ánægð með myndirnar mínar. Þær sýna ekki myrkrið.

Þær sýna daginn þegar ég beið eftir því.

En svo þegar ég vaknaði í morgun þá tók þessi dásemd á móti mér og bauð mér góðan daginn og ég verð að segja það að elska morgunsólina, elska hana meira en kvöldsól en það er bara svo týpísk ég.

Þangað til næst, ykkar Kristín á Nesan.