Það er búið að vera rosalega skrítið veður í sumar. Mikil sól, mikill hiti og stundum alveg hreint yndislegt… en svo hefur nánast alltaf verið rok! Við erum því bara búin að fara þrisvar út á bátnum í allt sumar og nú er sumarið eiginlega að verða búið.
En svona er þetta bara. Við ráðum ekki við veðrið, þótt maður myndi stundum alveg vilja fá að hringja eitthvert og kvarta.
Árið 2026 var greinilega ekki mikið bátaár hjá okkur. En í staðinn hefur verið mikið baðað í ánni, þannig að það er alltaf eitthvað sem er minna af og eitthvað annað sem kemur í staðinn. Maður verður bara að nýta það sem maður fær – hvort sem það eru bátsferðir eða sundsprettir í ánni.
Ég skrapp inn í Mandal í búðir í síðustu viku og ákvað þá að kíkja niður á Bravo. Skalldyrfestivalen hafði verið helgina á undan og mér fannst alveg eins gott að athuga hvort ekki væri allt í lagi með bátinn.
Sem það var auðvitað.
Þarna lá hann bara, alveg saklaus og fínn, eins og hann hefði ekkert með það að gera að veðrið hefði verið svona ómögulegt í allt sumar.
Og auðvitað var Þráinn í vinnunni þennan dag.
Því að sjálfsögðu var þetta dagurinn sem var blankalogn!
Ekki bara smá gott veður. Nei nei. Alveg þannig veður að maður stendur þarna og hugsar:
„Já, einmitt. Akkúrat í dag. Þegar ég er ein og get ekki bara ákveðið að skella mér út á sjó.“
(Hér koma nokkrar myndir af Bravo í sínu fínasta blankalognsveðri.)
Svo ákváðum við að nýta okkur veðrið og skruppum eldsnemma á laugardagsmorgninum í smá túr með Bravo. Og þá komst ég að því að ég þarf greinilega að fara að læra eitthvað betur á þessar ölduspár.
Ölduhæðin var 0,7 metrar þennan morguninn og allt leit bara ágætlega út uppi í á. En um leið og við komum út fyrir ströndina… þá var bara svakaleg undiralda.
Og fyrir mér er það ekkert til að njóta.
Ég fer ekki í bátsferð til að láta hrista úr mér innyflin. Ég vil sigla rólega, kósa mig, hafa smá vind í hárinu og horfa á fallegt útsýnið.
Ekki sitja með hárið límt út um allt, halda mér fast og hlusta á bátinn skella niður á öldurnar eins og einhver sé að berja botninn með sleggju.
Það var sko ekkert svona „vindur í hárinu“ þarna á laugardaginn.
Þetta var meira hávaðarok í hárinu og skellur í hryggnum.
Ég er nefnilega alveg smá sjóhrædd.
Reyndar er ég líka bílhrædd, þannig að það er kannski bara best að segja að ég sé svolítið hrædd við allt sem fer hraðar en ég sjálf á tveimur fótum.
Ég hef meira að segja sagt við Þráin að ég myndi alveg skilja það ef hann vildi einhvern tíma bjóða einhverjum öðrum en mér í bátsferð. Það getur ekki alltaf verið sérlega gaman að hafa mig sitjandi við hliðina á sér, hálfhrædda og með augun á hverri einustu öldu sem nálgast.
Kannski langar skipperinn stundum bara að gefa aðeins í, finna fyrir öldunum og njóta þess að sigla hratt.
En ekki með mig.
Því þá verð ég bara skíthrædd.
Það gleymdist alveg að gefa mér söngröddina sem virðist vera svo algeng í minni fjölskyldu… en það gleymdist líka að gefa mér sjómannsblóðið.
Samt elska ég alveg þessar góðu bátsferðir þegar við náum að fara í rólegheitum út í einhverja eyjuna – eða, ef við eigum að vera alveg heiðarleg, þá yfirleitt bara sömu eyjuna og alltaf. 😂
Eða bara sigla smá hring í kringum eyjarnar, skoða, njóta og hafa það kósý.
En þá verður að vera logn.
Alvöru logn.
Og helst engin undiralda.
Engar stórar öldur.
Og ef hægt væri að tryggja það, þá væri líka fínt að báturinn skelli ekki niður eins og hann sé að reyna að losna undan mér.
En þangað til… þá er bara að vona að við náum kannski einni eða tveimur alvöru kósíbátsferðum áður en sumarið ákveður endanlega að kveðja.
Og hvað sem öllum öldum og veðri líður…
Skipperinn minn er alltaf sætastur. ❤️
Þangað til næst, ykkar Kristín á Nesan.





